Sparisjóður Höfðhverfinga og Þór/KA í samstarf

Sparisjóður Höfðhverfinga hefur undirritað samstarfssamning við kvennalið knattspyrnudeildar Þórs/KA.

Sparisjóðurinn leggur áherslu á að styrkja verkefni á sviði íþrótta- og tómstundamála í nærumhverfi sínu en hlutverk Sparisjóðsins er að standa vörð um hagsmuni landsmanna, styrkja innviði samfélagsins og styðja við félags- og atvinnulíf í heimabyggð.

"Við fögnum samstarfi við Sparisjóðinn sem felur í sér mikilvægan stuðning við metnaðarfullt uppbyggingarstarf félagsins. Það eru spennandi tímar framundan þar sem mikið af ungum og efnilegum stúlkum eru að fá að njóta sín", segir Guðrún Una Jónsdóttir ritari stjórnar Þórs/KA.

„Samstarf við kvennalið Þórs/KA er í takt við samfélagslega ábyrgð Sparisjóðsins þar sem við styðjum við íþrótta- og félagsstarf í nærumhverfi okkar. Við hlökkum til samstarfsins“, segir Jón Ingvi Árnason sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Höfðhverfinga.

 

Á meðfylgjandi mynd má sjá Jón Ingva Árnason sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Höfðhverfinga og Guðrúnu Unu Jónsdóttur fulltrúa Þórs/KA undirrita samstarfssamninginn.