20.02.2022			
	
	Lokunin stendur yfir í u.þ.b 3-4 klst eða fram eftir degi.
Lesa meira
	
 	
		
		
			
					15.02.2022			
	
	Heimabanki og hraðbankar verður óaðgengilegir í tvo til fjóra tíma á sunnudag. 
Lesa meira
	
 	
		
		
			
					07.02.2022			
	
	Vegna innleiðingar á nýju innlána- og greiðslukerfi helgina 18.-20. febrúar mun tímabil vaxta taka breytingum á ákveðnum reikningum. 
Í dag er vaxtatímabilið frá 21. - 20. hvers mánaðar, en eftir innleiðinguna mun vaxtatímabilið miðast við mánaðarmót. 
Lesa meira
	
 	
		
		
			
					26.01.2022			
	
	Helgina 18.-20. febrúar 2022, munu sparisjóðirnir innleiða nýtt greiðslu- og innlánakerfi í samstarfi við Reiknistofu bankanna. Nýja kerfið er frá alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækinu Sopra og leysir 40 ára gömul kerfi af hólmi. Stefnt er að því að viðskiptavinir finni sem minnst fyrir innleiðingunni en þó er óhjákvæmilegt að röskun verði á þjónustu helgina 18. – 20. febrúar.  Þá má búast við truflunum á virkni netbanka og hraðbanka.  
Lesa meira
	
 	
		
		
			
					16.08.2021			
	
	Nú er einfalt og öruggt að borga með Apple Pay hjá sparisjóðunum.
Skráðu debit- eða kreditkortið þitt í Apple Wallet og byrjaðu að borga með Apple Pay!
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			
					27.04.2021			
	
	Þann 29. apríl verður eldri kreditkortum lokað hjá þeim sem hafa fengið sent nýtt kort vegna endurútgáfu korta. Ekki verður hægt að nýta eldri kortin lengur þrátt fyrir að gildistími þeirra sé ekki útrunninn. Nýju korti fylgir nýtt PIN númer sem hægt er að nálgast í heimabanka sparisjóðsins.
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			
					25.03.2021			
	
	Nú er fyrirtækjahlutinn klár í nýja heimabanka sparisjóðanna.  Fyrir mánuði síðan var lokið við að flytja alla einstaklinga yfir í nýja heimabankann.  Í dag er að ljúka öllum nauðsynlegum aðgerðum til að flytja og opna fyrir fyrirtæki í nýja heimabanka sparisjóðanna.
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			
					24.02.2021			
	
	Síðastliðið sumar var tekinn í gagnið nýr heimabanki Sparisjóðanna. Á meðan hann var í prófunum var gamli heimabankinn opinn fyrir notendur. Næstkomandi fimmtudag, 25. febrúar, verður lokað á þann aðgang einstaklinga.
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			
					10.12.2020			
	
	Árið 2020 er afmælisár, en á því ári verður Sparisjóðurinn 100 ára. Sparisjóður Norðfjarðar var stofnaður 2. maí 1920 en tók til starfa 1. september sama ár. Sjóðurinn bar nafnið Sparisjóður Norðfjarðar til ársins 2015 en þá var nafni hans breytt í Sparisjóður Austurlands. Á afmælisárinu verða birtir þættir um sögu sjóðsins á heimasíðu hans, en í þeim verður einnig fjallað almennt um sögu sparisjóða á landinu.
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			
					02.12.2020			
	
	Sparisjóðirnir standa nú í útskiptingu kreditkorta fyrir þá viðskiptavini sína sem eru með kreditkort á númerasviði (BIN) sem þarf að skipta út.  Nýja kortið er með nýju BIN kortanúmeri og nýjum gildistíma. Við biðjum viðskiptavini að athuga að nýju kortin eru með nýju kortanúmeri og því fylgir nýtt PIN númer sem hægt er að nálgast í heimabankanum undir Yfirlit - Kreditkort - Nánari upplýsingar - Sækja PIN.
Innlendar boðgreiðslur eiga í flestum tilvikum að flytjast yfir á nýtt kort (kortanúmer), þegar það eldra lokast, en ef kortanúmer er skráð fyrir greiðslu/áskrift hjá erlendum söluaðila, þá þarf að uppfæra kortanúmer þar. Einnig þarf að tilkynna nýtt kortanúmer til útgáfuaðila lykla fyrir eldsneyti eða frá olíufélögunum.
Lesa meira