Viðskiptavinir sparisjóðanna geta nú borgað með Google Wallet™

Skráðu debit- eða kreditkortið þitt í Google Wallet™ og byrjaðu að borga með Google Pay™!

Google Pay

Google Pay er einföld, örugg og þægileg leið til að borga fyrir vörur og þjónustu, án þess að vera með greiðslukortið við hendina. Þegar greiðslukort hefur verið tengt við Google Wallet er hægt að borga með snjallsímanum. 

Það kostar ekkert aukalega að nota Google Pay, færslugjöld eru þau sömu og á greiðslukortinu sem er tengt við Google Wallet. Mikil áhersla er á öryggi en kortanúmer er hvorki vistað í snjalltækið né netþjóna Google og því aldrei deilt með seljendanum.

Við hvetjum viðskiptavini sem hafa áhuga á að greiða með snjalltækjum að kynna sér Google Pay.

Virkja Google Pay