Hvað get ég gert í appinu?
Þú getur sinnt öllum helstu bankaviðskiptum í appinu t.d:
- Skoðað yfirlit yfir stöðu reikninga
- Skoðað yfirlit yfir stöðu lána
- Millifært
- Greitt reikninga
- Sótt PIN númer korta
- Greitt inn á lán
- Dreift kreditkortareikningi
- Fryst debet- og kreditkort
- Stofnað þinn eigin sparnaðarreikning
- Sótt kortaupplýsingar sem hentar vel þegar verslað er á netinu
- Flakkað á milli aðganga t.d. einstaklings- og fyrirtækjaaðgangs
- Skoðað rafræn skjöl eins og launaseðla
- Leitað í þjóðskrá
- ... og fleira
Hvernig sæki ég appið?
- IOS: Leitar eftir appinu "Sparisjóðurinn" í App Store. Þar smelliru á "Get'' og getur byrjað að nota.
- Android: Leitar eftir appinu "Sparisjóðurinn" í Play Store og smellir á "Install" og getur byrjað að nota.
Hvernig skrái ég mig inn í appið?
Þú notar rafræn skilríki til að skrá þig inn í appið í fyrsta skipti. Eftir það getur þú notað andlits- eða fingrafaragreiningu við innskráningu. Við fyrstu notkun þarf einnig að samþykkja Heimabanka- og Appskilmála Sparisjóðsins.
Athugið - Af öryggisástæðum verður reglulega beðið um innskráningu með rafrænum skilríkjum
Get ég skráð mig inn með notendanafni og lykilorði?
Nei. Það er ekki hægt. Þú verður að nota rafræn skilríki til að brja að nota appið og eftir það nota andlits- eða fingrafaragreiningu.
Þarf ég að vera viðskiptavinur sparisjóðanna til að fá aðgang að appinu?
Já. Núverandi viðskiptavinir fá sjálfkrafa aðgang að appinu en þurfa að samþykkja Heimabanka- og Appskilmála Sparisjóðsins. Nýjir viðskiptavinir fá aðgang við upphaf viðskipta.
Hvernig stilli ég hvaða reikningar birtast undir "Yfirlit"?
Þú smellir á tannhjólið efst í hægra horni appsins á forsíðu og notar svo augntáknin til að fela eða birta reikninga.
Hvernig sæki ég PIN númer fyrir kort?
Þú getur sótt PIN númer á kortum með því að smella á "Meira" neðst í vinstra horni appsins og velur þar "PIN-númer". Þar birtast þau kort sem þú ert með og hnappar til að sækja PIN númerin.
Get ég greitt inn á lán í appinu?
Já, undir "Meira" og "Lán" velur þú lánið sem þú vilt greiða inn á og reikning sem taka á út af og framkvæmir innborgunina á lánið. Einfalt og þægilegt.
Get ég dreift kreditkortareikningi sjálf/ur í appinu?
Já. Þú getur drefit kreditkortareikningi sjálf/ur. Þegar reikningur birtist til greiðlsu getur þú valið að dreifa honum.
Get ég stofnað minn eigin sparnaðarreikning í appinu?
Já. Þú getur gert það undir "Meira" og "Stofna reikning".
Get ég fryst debet- og kreditkort í appinu?
Já. Þú getur fryst og affryst debet- og kreditkort undir "Kort" í appinu.
Get ég sótt kortaupplýsingar í appinu?
Já. Þú getur sótt upplýsingar um kortanúmer, gildistíma og CVC númer í appinu undir "Kort". Notandi auðkennir sig til að sjá upplýsingarnar og getur auk þess afritað þær. Þetta hentar sérstaklega vel þegar verslað er á netinu og kortið (plastið) er ekki við höndina.
Get ég flakkað á milli aðganga í appinu?
Já það er hægt að flakka á milli aðganga undir "Miera" í appinu. Þetta henta vel fyrir þá sem eru bæði með einstaklings- og fyrirtækjaaðgang.
Hvað eru rafræn skjöl?
Undir "Rafræn skjöl" birtast ýmis skjöl t.d. launaseðlar, viðskiptayfirlit, reikningar o.fl.
Hvernig sé ég yfirlit yfir lánið mitt?
Lánayfirlit birtist neðst undir "Yfirlit". Einnig geturu séð meira með því að smella á lánið eða farið í "Meira" neðst í vinstra horni appsins og velur þar "Lán".
Get ég flett upp í þjóðskrá í appinu?
Hægt er að fletta upp í þjóðskrá í appinu undir "Meira" og "Þjóðskrá".
Hvernig get ég stækkað og minnkað letur í appinu?
Leturstærðin fylgir alltaf stillingum símans. Til þess að stækka/minnka letur getur þú gert eftirfarandi:
IOS - Settings, Display & Brightness og smella á Text Size. Þar getur þú stillt stærðina á stöfunum með því að draga til hægri eða vinstri.
Android - Settings, leitar eftir Font Size. Þar getur þú stillt stærðina á stöfunum með því að draga til hægri eða vinstri.
Get ég stillt þema í appinu?
Já. Þú getur stillt Dökkt þema eða ljóst þema undir "Meira", "Stillingar" og smellir á "Þema".