Vaxtabreyting 08.06.2023 í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands 24.05.2023 upp á 1,25 prósentustig.

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands breytast inn- og útlánavextir sparisjóðsins fimmtudaginn 8. júní 2023.
Breytilegir vextir þegar veittra neytendalána hækka 30 dögum eftir tilkynningu. Breytilegir vextir annarra lána, yfirdráttarlána og innlána taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.


Breytingarnar eru eftirfarandi:


Óverðtryggð íbúðalán
• Íbúðalán I - breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,25 prósentustig og verða 10,30%
• Íbúðalán II - breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,25 prósentustig og verða 11,40%


Verðtryggð íbúðalán
• Engin breyting


Kjörvextir – Skuldabréfalána
• Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,25 prósentustig.
• Amennir verðtryggðir kjörvextir breytast ekki.


Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta
• Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga greiðslukorta hækka um 1,25 prósentustig


Innlán
Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga hækka um allt að 0,6 prósentustig.
Breytilegir óverðtryggðir vextir innlánsreikninga hækka um allt að 1,25 prósentustigi.
Breytilegir verðtryggðir vextir innlánsreikninga breytast ekki.


Vaxtabreytingar útlána taka mið af stýrivöxtum Seðlabankans og öðrum fjármögnunarkostnaði sparisjóðsins á hverjum tíma, m.a. útlánaáhættu, innlánum viðskiptavina, markaðsfjármögnun og eiginfjárgerningum.


Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.