Sumarstarf í afgreiðslu – Laugar og/eða Mývatnssveit

Sumarstarf í afgreiðslu – Laugar og/eða Mývatnssveit

Við leitum að metnaðarfullu starfsfólki með ríka þjónustulund í þjónustu- og afgreiðslustörf hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga á Laugum eða í Reykjahlíð Mývatnssveit.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka og þjónusta við viðskiptavini
  • Upplýsingagjöf, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar
  • Gott vald á íslenskri og enskri tungu
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stúdentspróf er æskilegt
  • Vandvirkni

Hjá okkur muntu fá tækifæri til að takast á við spennandi verkefni og vinna með skemmtilegu fólki.   Starfið felur í sér tækifæri til þjálfunar og þróunar

Opnunartími Sparisjóðsins er frá kl 10 – 16 mánudag til fimmtudags og kl 10 – 15 á föstudögum.

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2023.

Fyrirspurnir og umsóknir má senda á netfangið helgadogg@spthin.is