Aðalfundur Sparisjóðs Þingeyinga ses. verður haldinn í félagsheimilinu Breiðumýri í Reykjadal, miðvikudaginn 22. apríl 2026 og hefst hann kl. 18:00. Boðið verður upp á kvöldverð á fundinum.
Dagskrá fundarins:
- Fundarsetning, skipan starfsmanna.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins síðastliðið starfsár.
- Staðfesting á endurskoðuðum ársreikningi sparisjóðsins og tillaga sparisjóðsstjórnar um ráðstöfun hagnaðar.
- Kosning löggilts endurskoðanda.
- Tilnefning utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd.
- Tillaga stjórnar að breytingum á samþykktum sparisjóðsins.
- Kosning sparisjóðsstjórnar.
- Fundarhlé – talning atkvæða
- Kosning fulltrúa í tilnefningarnefnd.
- Ákvörðun um þóknun stjórnar.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
- Önnur mál.
Stjórn Sparisjóðs Þingeyinga
Umboðseyðublað