Sparisjóður Austurlands greiðir nú í júní út samfélagsstyrki sem nemur um 7,3 milljónum króna, að þessu sinni eru það þrjátíu og fjögur verkefni fá úthlutaða styrki í tengslum við afkomu sjóðsins á árinu 2025. Í lögum um fjármálafyrirtæki er Sparisjóðum landsins, einum fjármálafyrirtækja, gert skylt að ráðstafa að lágmarki 5% af hagnaði liðins árs fyrir skatta til samfélagslegra verkefna á starfssvæði sínu. Sparisjóður Austurlands hefur um árabil verið öflugur bakhjarl samfélagsverkefna á Austurlandi og hefur lagt hinum ýmsu verkefnum lið. Framlög til samfélagslegra verkefna Sparisjóðs Austurlands hf. hafa numið 27,7 milljónum króna vegna afkomu sjóðsins frá árinu 2020 til ársins 2025. Þessi framlög hafa verið veitt í hinn ýmsu verkefni á sviði menningar-, líknar- og velferðarmála, til uppbyggingar íþróttastarfs fyrir börn og unglinga og til björgunarsveita á svæðinu svo eitthvað sé nefnt. Það er von okkar að framlög sjóðsins komi styrktarþegum okkar að góðum notum til eflingar því mikilvæga starfi sem að þeir vinna á Austurlandi.