Á aðalfundi Sparisjóðs Austurlands hf. sem haldinn var þann 14. apríl síðastliðinn, var samþykkt, að greiða arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2025.
Arður nemur alls 55.040.000 kr., sem jafngildir 0,08 kr. á hlut eða 50% af hagnaði ársins 2025 og er greiddur til hluthafa sem skráðir voru í hlutaskrá félagsins þann 14. apríl 2026.
Arðgreiðslan var greidd þann 3. júní með millifærslu á skráða bankareikninga þeirra hluthafa sem eiga reikninga hjá sjóðnum. Þeir hluthafar sem ekki eiga skráða bankareikninga hjá sjóðnum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við sparisjóðinn í síma 470-1100 eða í gegnum netfangið sparaust@sparaust.is og gefa upp reikningsnúmer svo hægt sé að ganga frá greiðslum til þeirra.
Við viljum benda hluthöfum á að arður er fjármagnstekjuskattsskyldur samkvæmt gildandi lögum og var fjármagnstekjuskatti haldið eftir, þar sem við á.