Sparisjóðsappið

Einfalt og þægilegt!

Í Sparisjóðsappinu getur þú sinnt öllum helstu bankaviðskiptum á fljótlegan, einfaldan og öruggan hátt.

Þú hefur yfirlit yfir stöðu reikninga og lána, getur millifært, greitt reikninga, sótt PIN númer korta,

skoðað rafræn skjöl eins og launaseðla og margt margt fleira.

  File:Download on the App Store Badge.svg - WikipediaGoogle Play Badges – Google

 

 

 

 

 


Spurt og svarað

Hvað get ég gert í appinu?

Þú getur sinnt öllum helstu bankaviðskiptum í appinu t.d:

  • Skoðað yfirlit yfir stöðu reikninga
  • Skoðað yfirlit yfir stöðu lána
  • millifært
  • Greitt reikninga
  • Sótt PIN númer korta
  • Skoðað rafræn skjöl eins og launaseðla
  • Leita í þjóðskrá
  • ... og fleira

Hvernig sæki ég appið?

  • IOS: Leitar eftir appinu ,,Sparisjóðurinn" í App Store. Þar smelliru á ,,Get'' og getur byrjað að nota.
  • Android: Leitar eftir appinu ,,Sparisjóðurinn" í Play Store og smellir á ,,Install" og getur byrjað að nota.

Hvernig skrái ég mig inn í appið?

Þú notar rafræn skilríki til að skrá þig inn í appið í fyrsta skipti. Eftir það getur þú notað andlits- eða fingrafaragreiningu við innskráningu. Við fyrstu notkun þarf einnig að samþykkja Heimabanka- og Appskilmála Sparisjóðsins.

Athugið - Af öryggisástæðum verður reglulega beðið um innskráningu með rafrænum skilríkjum

Get ég skráð mig inn með notendanafni og lykilorði?

Nei. Það er ekki hægt. Þú verður að nota rafræn skilríki til að brja að nota appið og eftir það nota andlits- eða fingrafaragreiningu.

Þarf ég að vera viðskiptavinur sparisjóðanna til að fá aðgang að appinu?

Já. Núverandi viðskiptavinir fá sjálfkrafa aðgang að appinu en þurfa að samþykkja Heimabanka- og Appskilmála Sparisjóðsins. Nýjir viðskiptavinir fá aðgang við upphaf viðskipta.

Hvernig stilli ég hvaða reikningar birtast undir ,,Yfirlit"?

Þú smellir á tannhjólið efst í hægra horni appsins á forsíðu og notar svo augntáknin til að fela eða birta reikninga.

Hvernig sæki ég PIN númer fyrir kort?

Þú getur sótt PIN númer á kortum með því að smella á ,,Meira" neðst í vinstra horni appsins og velur þar ,,PIN-númer". Þar birtast þau kort sem þú ert með og hnappar til að sækja PIN númerin.

Hvað eru rafræn skjöl?

Undir ,,Rafræn skjöl" birtast ýmis skjöl t.d. launaseðlar, viðskiptayfirlit, reikningar o.fl.

Hvernig sé ég yfirlit yfir lánið mitt?

Lánayfirlit birtist neðst undir ,,Yfirlit". Einnig geturu séð meira með því að smella á lánið eða farið í ,,Meira" neðst í vinstra horni appsins og velur þar ,,Lán".

 Get ég flett upp í þjóðskrá í appinu?

Hægt er að fletta upp í þjóðskrá í appinu undir ,,Meira" og ,,Þjóðskrá.

 Hvernig get ég stækkað og minnkað letur í appinu?

Leturstærðin fylgir alltaf stillingum símans. Til þess að stækka/minnka letur getur þú gert eftirfarandi:

IOS - Settings, Display & Brightness og smella á Text Size. Þar getur þú stillt stærðina á stöfunum með því að draga til hægri eða vinstri.
Android - Settings, leitar eftir Font Size. Þar getur þú stillt stærðina á stöfunum með því að draga til hægri eða vinstri.

 Get ég stillt þema í appinu?

Já. Þú getur stillt Dökkt þema eða ljóst þema undir ,,Meira", ,,Stillingar" og smellir á ,,Þema.

Skilmálar Sparisjóðana fyrir Heimabanka og App má nálgast hér.

 

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?