Debitkort

Debitkort er mjög hentugur greiðslumáti sem hægt er að nota bæði hérlendis og erlendis, í sparisjóðum, bönkum, hraðbönkum og verslunum.

Fleiri möguleikar í einu korti:

  • Kortið er jafnan tengt veltu- og/eða launareikningi
  • Snertilausar greiðslur.
  • Hægt er að greiða með því að leggja kortið að posum sem eru með snertilausa merkið.
    • Hámarksupphæð á snertilausri greiðslu er 4.999 kr.
    • Samtals geta þær mest farið í 10.500 kr. og þá kallar kortið eftir að nota örgjörva og PIN. Því miður svara sumir posar með „Notið annað kort“ en það þýðir samt að nota eigi örgjörvann.
    • Færslur eru einnig taldar þannig að hægt er að gera fimm snertilausar færslur en í sjötta skiptið þarf að nota örgjörvann og PIN.
  • Greiðslur á netinu
    • Þar sem debitkortin eru með 16 stafa kortanúmer og þriggja stafa öryggisnúmer er hægt að nota þau til að greiða á þeim stöðum sem taka við debitkortagreiðslum á netinu.
  • Alþjóðlegt VISA kort
    • Debitkort sparisjóðsins er alþjóðlegt Visa kort sem fylgir nýjustu öryggisstöðlum og tekið er við því á mun fleiri stöðum en eldri debitkortum.
  • Vottun VISA
    • Til að auka öryggi korthafa í netviðskiptum hefur verið bætt inn upplýsingum í SMS skilaboð sem korthafi fær þegar hann verslar við fyrirtæki sem er með vottun Visa.
    • Í skilaboðunum er staðfestingarkóði (Secure Code) sem korthafi þarf að slá inn til að staðfesta viðskiptin. Auk þess hefur verið bætt inn upplýsingum um nafn söluaðila og fjárhæð viðskipta.

Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með gengistöflum kortafyrirtækja er varðar gengi á erlendum færslum.
Útlán eru háð lánareglum sparisjóðsins.

Skilmálar debitkorta

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?