Vegna tæknilegrar sameiningar Sparisjóðs Strandamanna og Sparisjóðs Höfðhverfinga í Smára sparisjóð verður þjónusta hraðbankans í Sparisjóðnum við Hafnarbraut 19, Hólmavík, takmörkuð.
Tímabundið eða til 7. júní næstkomandi verður einungis hægt að taka út úr honum með korti. Ekki er hægt að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum, skoðað stöðu reikninga og/eða millifæra beint úr hraðbankanum.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.