Sparisjóður Þingeyinga leitar eftir áhugasömu fólki í stjórn
Tilnefningarnefnd Sparisjóðs Þingeyinga leitar eftir einstaklingum sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til setu í stjórn sparisjóðsins á aðalfundi sem haldinn verður í apríl 2026.
Tilnefningarnefnd auglýsir hér með eftir mögulegum stjórnarmönnum en mun einnig leita fyrir sér að eigin frumkvæði. Frambjóðendur til stjórnarkjörs skulu hafa yfir að ráða reynslu og þekkingu og/eða hafa lokið námi sem nýtist í stjórnarstarfinu. Stjórnarmenn í sparisjóðnum líkt og öðrum fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum mega búast við því að vera kallaðir í hæfismat hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Áhugasamir skulu gefa sig fram við tilnefningarnefndina með tölvupósti fyrir 10. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Þórunn Sigtryggsdóttir.
Ari Teitsson ariteitsson@gmail.com
Þórunn Sigtryggsdóttir thorunn@laugar.is, gsm 894-3700