Tilnefningarnefnd sem kjörin er á aðalfundi Sparisjóðs Þingeyinga skipa nú Þórunn Sigtryggsdóttir og Ari Teitsson.
Tilnefningarnefnd hóf störf ársins í upphafi árs. Nefndin ræddi við alla núverandi aðal og vara stjórnarmenn og hélt nokkra misformlega fundi.
Þegar ljóst var að einn núverandi stjórnarmanna gefur ekki kost á endurkjöri og hvorugur varastjórnarmanna gefur kost á framboði til aðalstjórnar ákvað nefndin að auglýsa eftir framboðum til stjórnarkjörs. Þrjú framboð bárust.
Eftirtaldir aðilar bjóða sig fram til setu í aðalstjórn sparisjóðsins:
Berglind Pétursdóttir Húsavík, kennari/viðskiptafræðingur.
Bergþór Bjarnason Húsavík, fjármálastjóri. Var fyrsti varamaður frá 2024 -2025 og var kjörinn í aðalstjórn sparisjóðsins á aðalfundi 2025.
Dagbjört Jónsdóttir Laugum, svæðissérfræðingur. Vann um árabil hjá sparisjóðnum. Sat í stjórn sparisjóðsins 2013 – 2015 og var kjörin á ný í stjórn sparisjóðsins á aðalfundi 2025.
Eiríkur Hauksson Svalbarðsströnd, framkvæmdastjóri, hefur setið í aðalstjórn frá 2022.
Pétur Jónsson Víðum Reykjadal, ráðgjafi í fjármálum.
Rut Jónsdóttir Akureyri, sérfræðingur.
Sigríður Jóhannesdóttir Þistilfirði, framkvæmdastjóri , sat í aðalstjórn frá 2022 til 2023 og frá 2024.
Ekki hefur borist framboð til setu sem fyrsti varamaður stjórnar, en frambjóðendum til aðalstjórnar sem ekki ná kjöri verður gefinn kostur á framboði til varastjórnar.
Framboð til setu sem annar varamaður í stjórn:
Pétur Bergmann Árnason Húsavík, framkvæmdastjóri, hefur setið í varastjórn frá 2023
Tilnefningarnefnd metur alla ofantalda frambjóðendur hæfa til setu í stjórn sparisjóðsins og að með kjöri úr þeim hópi megi tryggja fullnægjandi yfirsýn, þekkingu og reynslu næstu stjórnar.
Þá hefur Tilnefningarnefnd gert tillögu til aðalfundar um starfskjör stjórnar.