Lán sjást tímabundið ekki í appi og heimabanka hjá viðskiptavinum Sparisjóðs Strandamanna

Sparisjóður Höfðhverfinga og Sparisjóður Strandamanna hafa sameinast undir einu nafni, Smári sparisjóður.

Vegna sameiningar tæknikerfa Sparisjóðs Höfðhverfinga og Sparisjóðs Strandamanna mun þjónusta tengt lánum viðskiptavina Sparisjóðs Strandamanna skerðast tímabundið á eftirfarandi hátt:

  1. Lán verða ekki sýnileg í appi né heimabanka Sparisjóðs Strandamanna frá og með miðvikudeginum 3. júní en verða aftur sýnileg í appi og heimabanka Smára sparisjóðs (sameinaður sjóður) eftir hádegi laugardaginn 6. júní, þá lýkur tæknilegri sameiningu sjóðanna.
    Þér er óhætt að greiða ógreidda greiðsluseðla vegna afborgana lána eins og áður þótt lánin séu ekki sýnileg í appi og heimabanka
  2. Á sama tíma, 3. júní til 6. júní, mun kröfuhafi fyrir ógreiddar greiðsluseðla fyrir lán birtast í appi og heimabanka sem Sparisjóður Höfðhverfinga. Eftir 6. Júní breytist kröfuhafinn í Smára sparisjóð.
    Ef eitthvað er óljóst er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur.

Við gerum okkur grein fyrir að þetta getur valdið óþægindum og biðjumst velvirðingar á því.

Með kærri kveðju,

Smári sparisjóður