Til að auka sveigjanleika í innlendri greiðslumiðlun og draga úr líkum á að truflanir á netsambandi hindri viðskipti verður almenningi senn gert kleift að greiða með greiðslukortum hér á landi, þ.e. debet- og kreditkortum, þótt nettenging rofni.
Í samstarfi við útgefendur íslenskra greiðslukorta og færsluhirða hefur Seðlabanki Íslands komið því til leiðar að mögulegt verði að greiða allt að 50.000 krónur með hverju greiðslukorti lögráða einstaklings hér á landi þrátt fyrir netleysi, að uppfylltu eftirfarandi:
Útgefendur geta ákveðið að veita hærri heimild á tiltekin kort og að greitt sé fyrir aðrar vörur en þær sem taldar eru upp að ofan.
Korthafi þarf sjálfur að virkja plastkort þannig að það virki í netleysi. Það er gert með því að greiða fyrir vöru í eitt skipti með því að stinga kortinu í greiðsluposa og auðkenna með PIN-númeri. Við þetta uppfærist örgjörvinn í kortinu sem geymir heimild fyrir greiðslur í netleysi. Þetta á að vera hægt að gera eftir 1. júlí 2026 en þó gæti tekið einhvern tíma fyrir alla þjónustuveitendur að innleiða lausnina.
Korthafar eru hvattir til að kynna sér hjá útgefanda kortsins, t.d. viðskiptabanka, hvaða heimildir fylgja korti eða kortum þeirra. Jafnframt eru þeir hvattir til að leggja PIN-númer tryggilega á minnið og hafa plastkort tiltæk. Ekki er unnt að nálgast PIN-númer korta í heimabanka eða í smáforriti í netleysi.
Ekki er þörf á að virkja sérstaklega kort sem gefin eru út frá og með 1. júlí 2026 til þess að hægt sé að greiða í netleysi.
Seðlabankinn mun áfram vinna að því að efla viðnámsþrótt í greiðslumiðlun á Íslandi, meðal annars þannig að unnt verði að nýta snertilausar lausnir, svo sem síma og snjallúr, verði rof á nettengingu.
