Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Þingeyinga 223,7 milljónir króna

Fulltrúar styrkþega, frá vinstri Sæmundur Þór Sigurðsson, Stefán Pétur Sólveigarson, Ásgerður Arnard…
Fulltrúar styrkþega, frá vinstri Sæmundur Þór Sigurðsson, Stefán Pétur Sólveigarson, Ásgerður Arnardóttir, Sigrún Jónsdóttir og Örn Arnar Óskarsson.

Aðalfundur Sparisjóðs Þingeyinga var haldinn 22. apríl s.l. í Breiðumýri í Reykjadal. Rekstur sparisjóðsins gekk vel á síðasta ári, hagnaður af starfseminni var 223,7 milljónir króna eftir skatta.

Um síðustu áramót voru heildareignir sparisjóðsins 15,7 milljarðar króna og hafa aukist um einn milljarð króna á milli ára. Innlán voru á sama tíma 13,6 milljarðar. Eigið fé sparisjóðsins var ríflega 1,7 milljarður í árslok og lausafjárstaða sparisjóðsins er áfram sterk.

20 milljónir króna í samfélagsstyrki á síðasta ári

Á aðalfundinum voru afhentir styrkir að fjárhæð 9 milljónir króna. Ennfremur kom fram í skýrslu Margrétar Hólm Valsdóttur, fráfarandi stjórnarformanns, að á síðasta ári greiddi Sparisjóður Þingeyinga út samtals 20 milljónir króna í samfélagsstyrki á starfssvæði sínu.

Í Þingeyjarsýslum eru átta björgunar- hjálparsveitir, á myndinni eru fulltrúar þeirra flestra ásamt Erni Arnari Óskarssyni sparisjóðsstjóra, lengst til hægri á myndinni. Sparisjóðurinn veitti sveitunum samtals 4 milljóna króna styrk til að efla ungliðastarf björgunarsveitanna.

Auk þess tóku fulltrúar eftirtalinna félaga á móti 1 milljóna króna styrk hver, samtals 5 milljónir.

  • Rauði krossinn í Þingeyjarsýslu
  • Húsmæðraskólinn á Laugum (Kvenfélagasambandið)
  • Krabbameinsfélag Norðausturlands
  • Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga
  • Fab Lab á Húsavík

 

Fulltrúa styrkþega má sjá á myndinni hér uppi til hægri, frá vinstri Sæmundur Þór Sigurðsson, Stefán Pétur Sólveigarson, Ásgerður Arnardóttir, Sigrún Jónsdóttir og Örn Arnar Óskarsson.

Nýkjörin stjórn sparisjóðsins

Eftirtalin hlutu kjör í stjórn sparisjóðsins næsta starfsár: Berglind Pétursdóttir, Dagbjört Jónsdóttir, Eiríkur H. Hauksson, Pétur Jónsson og Sigríður Jóhannesdóttir.

Varamenn, Bergþór Bjarnason og Pétur B. Árnaso