Gamlársdagur ekki bankadagur – hefur áhrif á greiðslur og eindaga

Samkvæmt ákvörðun Seðlabankans er gamlársdagur, 31. desember, ekki lengur bankadagur.

Þetta hefur áhrif á eindaga greiðslna svo sem kröfur og launagreiðlsur.

Þess vegna er mikilvægt að fyrirtæki, stofnanir og aðrir sem gefa út kröfur, greiða laun og fleira hafi í huga að kröfur sem eiga að greiðast á árinu 2025 þurfa að hafa eindaga eigi síðar en þriðjudaginn 30. desember 2025. Eins þarf að passa að allar greiðslur sem eiga að tilheyra árinu 2025 þurfa að klárast eigi síðar en 30. desember.

Þetta hefur auk þess þau áhrif að þar sem gamlársdagur verður ekki bankadagur munu allar færslur sem gerðar eru 31. desember 2025 bókast þann 2. janúar 2026.