Áríðandi skilaboð til viðskiptavina

Kæri viðskiptavinur,

Sparisjóður Höfðhverfinga og Sparisjóður Strandamanna hafa sameinast undir einu nafni, Smári sparisjóður. Sameiningin er mikilvægt skref til að efla þjónustu okkar til framtíðar.

Næsta skref er að sameina tæknikerfi sjóðanna. Sú vinna fer fram laugardaginn 6. júní.

Hvað þýðir þetta fyrir þig?
Frá klukkan 23:30 föstudaginn 5. júní til um kl. 13:00 laugardaginn 6. júní:

  • Verða app, Heimabanki og hraðbankar óaðgengilegir
  • Það þýðir meðal annars að ekki verður hægt að millifæra, greiða reikninga, skoða stöðu reikninga, skoða stöðu lána eða taka út pening á þeim tíma

Góðu tíðindin:
Öll kort, bæði debet- og kreditkort virka áfram eins og venjulega. Kortanotkun ætti því ekki að raskast á þessum tíma.

Verða einhverjar breytingar í framhaldinu?
Við leggjum okkur fram við að gera þessa breytingu eins hnökralausa og mögulegt er, þannig að þú finnir sem allra minnst fyrir henni.

Eftir að tæknilegri sameiningu lýkur þarft þú að:

  • Skrá þig aftur inn í appið og velja þar Smári sparisjóður
  • Skrá þig inn í Heimabankann með því að velja Smári sparisjóður

Í báðum tilvikum notar þú áfram rafræn skilríki eins og áður.

Annað verður óbreytt
Þú sérð áfram öll þín gögn og reikninga. Þú getur gert allt það sama og áður í appi og Heimabanka.

Reikningsnúmer haldast óbreytt (engin breyting þar).

 

Við munum setja upplýsingar um gang mála eftir þörfum á heimasíðu okkar www.spar.is og samfélagsmiðla,

 

Við gerum okkur grein fyrir að þetta getur valdið óþægindum og biðjumst velvirðingar á því. Við erum hins vegar sannfærð um að þessi samruni muni skila sér í betri og einfaldari þjónustu til lengri tíma.

Ef eitthvað er óljóst er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur.

Með kærri kveðju,
Smári sparisjóður