Nýjungar í appi og Heimabanka

Við höfum bætt við nokkrum nytsamlegum nýjungum í appið okkar og Heimabankann.

Sækja upplýsingar um kort t.d. til að versla á netinu

Nú er hægt að sækja upplýsingar um kortanúmer, gildistíma og CVC númer í appi og Heimabanka fyrir bæði debet- og kreditkort. Notandi auðkennir sig til að sjá upplýsingarnar og getur auk þess afritað þær.

Þetta hentar sérstaklega vel þegar verslað er á netinu og kortið (plastið) er ekki við höndina.

Dreifa kreditkortareikningi

Notandi getur nú sjálfur dreift kreditkortareikningi í appi og Heimabanka. Við útgáfu kreditkortareiknings birtist hnappur, „Dreifa greiðslum“, þar sem hægt er að velja hversu háa upphæð viðkomandi vill greiða inn á kortið og hversu marga mánuði restin á að dreifast á.

Frysta / affrysta debetkort

Búið er að bæta við möguleikanum á að frysta debetkort en það hefur hingað til einungis verið hægt fyrir kreditkort.

Með því að frysta kortið þá hættir það að virka og ekki er hægt að nota það. Þetta getur verið hentugt ef þú telur færslur vera óeðlilegar og þú vilt athuga hvort þær eigi rétt á sér. Alltaf er hægt að affrysta kortið aftur og byrjað að nota það.

Auðkennisapp

Notandi getur nú auðkennt sig inn í Sparisjóðsappið með Auðkennisappinu. Þetta er  viðbótarleið við rafræn skilríki. Auðkennisappið þarf að vera uppsett í síma notanda.