Vaxtahækkun 5 júlí 2023

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands breytast inn- og útlánavextir Sparisjóðsins, miðvikudaginn 5. júlí.
Breytilegir vextir þegar veittra lána hækka 30 dögum eftir tilkynningu nema yfirdráttarlán og innlán sem taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.
Breytingarnar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán

  • Íbúðalán I - breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,25 prósentustig og verða 10,45%
  • Íbúðalán II - breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,25 prósentustig og verða 11,45%

Verðtryggð íbúðalán

  • Engin breyting


Kjörvextir – Skuldabréfalána

  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,25 prósentustig og verða 11,7%.
  • Almennir verðtryggðir kjörvextir verða óbreyttir

Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta

  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga greiðslukorta hækka um 1,25 prósentustig


Bílalán

  • Kjörvextir bílalána hækka um 1,25 prósentustig.

Innlán

  • Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga hækka um allt að 0,75 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir vextir innlánareikninga hækka um allt að 0,75 prósentustig.
  • Vextir verðtryggða innlána breytiast ekki
  • Vaxtabreytingar útlána taka mið af stýrivöxtum Seðlabankans og öðrum fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma, m.a. útlánaáhættu, innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
  • Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.