Upplýsingar á vefnum eru ætlaðar til almennra upplýsingagjafar um starfsemi, vörur og þjónustu Sparisjóðsins.
Sparisjóðurinn leggjur áherslu á að upplýsingar á vefnum séu réttar og uppfærðar. Upplýsingar eru byggðar á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en ekki er unnt að ábyrgjast að þær séu ávallt réttar, nákvæmar eða tæmandi.
Upplýsingar á vefnum geta breyst án fyrirvara. Sparisjóðurinn áskilur sér rétt til að breyta, bæta við eða fjarlægja upplýsingar á vefnum eftir því sem þörf krefur.
Ef ósamræmi er á milli upplýsinga á vefnum og gildandi samninga, skilmála, gjaldskráa eða annarra bindandi gagna gilda ákvæði viðkomandi bindandi gagna.
Upplýsingar á vefnum um vörur, þjónustu, vexti, gjöld og önnur viðskiptakjör eru almenns eðlis nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Endanleg kjör og skilmálar viðskipta ráðast eftir atvikum af mati Sparisjóðsins, gildandi skilmálum, gjaldskrá, samningi við viðskiptavin og öðrum viðeigandi gögnum.
Upplýsingar á vefnum fela ekki einar og sér í sér skuldbindandi tilboð af hálfu Sparisjóðsins nema það sé sérstaklega tekið fram.
Niðurstöður reiknivéla og annarra útreikninga á vefnum eru ætlaðar til viðmiðunar og almennrar upplýsingagjafar.
Útreikningar kunna að byggjast á tilteknum forsendum og endurspegla ekki í öllum tilvikum endanleg kjör, kostnað eða greiðslur viðskiptavinar.
Niðurstöður reiknivéla fela ekki í sér skuldbindandi tilboð eða loforð um lánveitingu eða önnur viðskipti af hálfu Sparisjóðsins.
Almennar upplýsingar á vefnum teljast ekki persónuleg fjármálaráðgjöf, fjárfestingarráðgjöf eða önnur einstaklingsbundin ráðgjöf nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Viðskiptavinir eru hvattir til að kynna sér viðeigandi skilmála og upplýsingar um viðkomandi vöru eða þjónustu og leita eftir frekari upplýsingum hjá Sparisjóðnum eftir þörfum.
Sparisjóðurinn leggur áherslu á öruggt og áreiðanlegt aðgengi að vefnum og rafrænum þjónustuleiðum.
Ekki er þó unnt að tryggja að vefurinn, Heimabanki, app eða önnur rafræn þjónusta sé ávallt aðgengileg án truflana. Aðgengi kann meðal annars að skerðast tímabundið vegna viðhalds, bilana, fjarskiptatruflana, öryggisatvika eða annarra atvika sem hafa áhrif á rekstur upplýsingakerfa.
Upplýsingar um sérstaka skilmála fyrir vörur og þjónustu er að finna í viðeigandi þjónustuskilmálum.
Á vefnum kunna að vera tenglar á vefsíður, þjónustu eða efni sem rekið er af þriðju aðilum.
Sparisjóðurinn ber ekki ábyrgð á efni, öryggi, aðgengi eða meðferð persónuupplýsinga á vefsíðum eða í þjónustu þriðju aðila. Notkun slíkrar þjónustu kann að lúta skilmálum og persónuverndarstefnu viðkomandi þjónustuveitanda.
Sparisjóðurinn ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að almennar upplýsingar á vefnum eru rangar, ófullnægjandi eða úreltar, nema ábyrgð leiði af ófrávíkjanlegum ákvæðum laga eða samningi.
Sama á við um tjón sem kann að leiða af tímabundnu óaðgengi að vefnum eða annarri rafrænni þjónustu, að því marki sem takmörkun ábyrgðar er heimil samkvæmt lögum og viðeigandi samningsskilmálum.
Ekkert í þessum fyrirvara takmarkar réttindi viðskiptavina sem leiða af ófrávíkjanlegum ákvæðum laga.
Efni á spar.is, þar á meðal texti, myndir, merki, hönnun og annað efni, er verndað af höfundarrétti og öðrum hugverkaréttindum eftir því sem við á.
Óheimilt er að afrita, birta, dreifa eða nýta efni af vefnum í atvinnuskyni án samþykkis rétthafa nema slík notkun sé heimil samkvæmt lögum.
Heimilt er að vista eða prenta upplýsingar af vefnum til einkanota enda sé efni ekki breytt og uppruna þess getið þar sem við á.
Meðferð persónuupplýsinga í tengslum við notkun vefsins fer samkvæmt persónuverndarstefnu Sparisjóðsins og gildandi lögum um persónuvernd.
Nánari upplýsingar um notkun vefkaka og sambærilegrar tækni er að finna í upplýsingum um vefkökur á spar.is.
Sérstakir fyrirvarar eða skilmálar kunna að gilda um einstakar vörur, þjónustu, reiknivélar, upplýsingar eða aðra virkni á vefnum.
Slíkir sértækir fyrirvarar og skilmálar ganga framar þessum almenna fyrirvara ef ósamræmi er þar á milli.
Sparisjóðurinn áskilur sér rétt til að breyta þessum fyrirvara eftir því sem tilefni er til, meðal annars vegna breytinga á starfsemi, þjónustu, tækni eða regluverki.
Gildandi útgáfa fyrirvarans er á hverjum tíma birt á spar.is.