Erlendar greiðslur

Í samstarfi við erlendan samstarfsaðila býður Sparisjóðurinn viðskiptavinum sínum nú uppá erlendar greiðslur. Viðskiptavinir Sparisjóðsins geta því sent og móttekið greiðslur í erlendri mynt.

Hér að neðan má nálgast allar helstu upplýsingar um erlendar greiðslur hjá Sparisjóðnum. Ef frekari spurngingar vakna eru starfsmenn Sparisjóðsins ávallt tilbúnir að aðstoða.

Í hvaða gjaldmiðlum get ég sent/móttekið erlendar greiðslur?

Sparisjóðurinn býður uppá erlend viðskipti í eftirfarandi gjaldmiðlum: USD, EUR, GBP, DKK, SEK, NOK, CAD, CHF, JPY

Hvað þarf ég að gera til að hefja erlendar greiðslur hjá Sparisjóðnum?

Áður en fyrsta erlenda greiðslan er send út eða móttekin þurfa viðskiptavinir að sækja um erlend viðskipti hjá sparisjóðunum og fylla út áreiðanleikakönnun. Einstaklingar geta gert það með því að fylla út form í vafra sem má finna undir "Umsóknir" -> "Upphaf erlendra viðskipta einstaklingar". Fyrirtækjum er bent á að hafa samband við sinn sparisjóð ef þeir óska eftir að hefja erlend viðskipti.

Hvernig sendi ég út erlenda greiðslu?

Ef viðskiptavinir óska eftir að senda út erlenda greiðslu þarf að fylla út umsókn um erlenda greiðslur. Einstaklingar geta gert það með því að fylla út form í vafra undir "Umsóknir" -> "Beiðni um erlenda greiðslu einstaklingar". Fyrirtækjum er bent á að hafa samband við sinn sparisjóð ef þeir óska eftir að senda út erlenda greiðslu. Nánari útlistun á þeim upplýsinum sem þurfa að vera til staðar til að óska eftir greiðslu má finna hér að neðan.

Hægt er að senda/móttaka greiðslur með tveim mismunandi leiðum:

  • Local greiðslur: Hér þarf að gefa upp reikningsnúmer viðtakanda (Account Number) og Bank Code/Sort Code banka, en það getur verið breytilegt eftir því hvert er verið að senda greiðsluna hvaða upplýsingar eiga við. Þessi greiðsluleið virkar að hluta til eins og hefðbundar millifærslur en er ekki hægt að nýta sér þessa leið í öllum tilfellum og hentar aðeins fyrir ákveðna gjaldmiðla til ákveðinna landa. Ráðlagt að nota þessa leið fyrir upphæðir undir 5 milljónum ISK . Enginn erlendur bankakostnaður er tekinn af greiðslunni.
  • SWIFT greiðslur: Hér þarf að gefa upplýsingar um IBAN númer reiknings og SWIFT númer banka. Þessar greiðslur eru rekjanlegar og hægt er að nota þær í öllum tilfellum. SWIFT greiðslur fara oft í gegnum nokkra banka á leið sinni á áfangastað og er erlendur bankakostnaður er tekinn af greiðslunni. Sparisjóðirnir geta ekki veitt upplýsingar um erlendan bankakostnað fyrirfram þar sem að hann er alfarið ákvarðaður af erlendu bönkunum sem greiðslan fer í gegnum.

Starfsmenn sparisjóðanna geta ráðlagt þér hvort greiðsluleiðin hentar þinni greiðslu betur.

Vakin er athygli á því að Sparisjóðnum ber að tilkynna allar erlendar greiðslur til Seðlabanka Íslands. Því er mikilvæg að viðskiptavinir flokki færslur með viðeigandi hætti þegar óskað er eftir erlendri greiðslu.

Nauðsynlegar upplýsingar um viðtakanda fyrir erlenda greiðslu

  • Fullt nafn viðtakanda
  • Heimilisfang viðtakanda
  • Netfang viðtakanda
  • IBAN númer/Reikningsnúmer viðtakanda
  • SWIFT númer erlenda bankans eða Bank Code/Sort Code

Hvað tekur langan tíma fyrir erlenda greiðslu að berast? 

Erlendar greiðslur skila sér til viðtakanda á 1-3 virkum dögum. Einstaka greiðslur berast samdægurs.

Hvað kostar að senda erlenda greiðslu?

Upplýsingar um kostnað sendanda má nálgast í verðskrá Sparisjóðsins. Fyrir Swift greiðslur bætist við erlendur banka kostnaður sem er dreginn af greiðslunni af þeim bönkum sem greiðslan fer í gegnum á leið sinni á áfangastað.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?