Saga sjóðsins 1161

Sparisjóður Kirkjubóls- og Fellshreppa var stofnaður þann 19. janúar árið 1891 en nafni hans var breytt í Sparisjóð Strandamanna árið 1995. Árið 1999 sameinaðist svo Sparisjóður Árneshrepps sparisjóðnum. Sjóðurinn er því á meðal elstu fjármálafyrirtækja í landinu. Lengst af var starfsemin á heimili gjaldkera og þar af í rúma fimm áratugi á Kirkjubóli. Árið 1998 keypti sparisjóðurinn húsnæði Íslandspósts á Hólmavík og flutti starfsemina þangað.

Sparisjóður Strandamanna er nú með afgreiðslur á Hólmavík og á Norðurfirði. Býður hann upp á heildarlausnir í fjármálum einstaklinga og fyrirtækja með áherslu á persónulega þjónustu. Auk þess annast hann afgreiðslu fyrir Íslandspóst á Hólmavík og hefur umboð fyrir Sjóvá Almennar tryggingar hf.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?