1106_Réttarúrræði

Réttarúrræði

Sparisjóðurinn er aðili að Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki.
Viðskiptavinur getur skotið ágreiningi sínum við Sparisjóðinn til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki í samræmi við samþykktir fyrir nefndina:

Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
Katrínartúni 2
105 Reykjavík
Sími: 520 3700 Fax: 520 3727
Tölvupóstur: urskfjarm@fme.is

Til að senda inn kvörtun til nefndarinnar þarf viðskiptavinur að fylla út sérstakt málskotseyðublað og greiða málskotsgjald. Ef kröfur viðskiptavinar eru teknar til greina að hluta eða að öllu leyti fæst málskotsgjaldið endurgreitt. Málskotseyðublaðið má finna á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins: www.fme.is.

Fjármálaeftirlitið starfrækir upplýsinga- og leiðbeiningaþjónustu fyrir viðskiptavini fjármálafyrirtækja. Sjá nánar á vef Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is.

Þá getur viðskiptavinur Sparisjóðsins einnig borið ágreiningsefni undir dómstóla.
Bent er á að Lögmannafélag Íslands býður almenningi ókeypis lögmannsaðstoð. Sjá nánar á vef Lögmannafélags Íslands, www.lmfi.is.

Samþ. í stjórn Sparisjóðs Austurlands hf. 03.01.2019

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?