Sparisjóðurinn býður upp á margs konar innlánsreikninga, bæði verðtryggða og óverðtryggða sem og lausa eða bundna. Þjónustufulltrúar sparisjóðsins veita þér aðstoð og upplýsingar til að finna þann sem hentar best.
Áskriftarreikningur
Áskriftarreikningur er bundinn, verðtryggður reikningur sem hentar vel fyrir þá sem vilja njóta góðrar ávöxtunar og hentar sérlega vel fyrir skipulagðan sparnað. Upphæðin er bundin til 60 mánaða og er öll upphæðin laus að þeim tíma loknum. Með áskriftarreikning tryggir þú þér góða ávöxtun og með verðtryggingu er sparnaðurinn tryggður gegn verðbólgu og þannig býður reikningurinn upp á stöðugleika í ávöxtun langtímasparnaðar.
Bakhjarl
Bakhjarl er bundinn, verðtryggður reikningur sem hentar vel fyrir þá sem vilja njóta góðrar ávöxtunar og binda upphæð sína í ákveðinn tíma. Hver innborgun á bakhjarli getur verið bundin til 36, 48 eða 60 mánaða og er laus í einn mánuð að þeim tíma loknum og síðan aftur bundin í fimm mánuði. Með bakhjarli tryggir þú þér góða ávöxtun og með verðtryggingu er sparnaðurinn tryggður gegn verðbólgu og þannig býður reikningurinn upp á stöðugleika í ávöxtun langtímasparnaðar.
Netreikningur
Sparisjóðurinn býður viðskiptavinum sínum upp á netreikning sem er hávaxta sparnaðarleið í heimabanka. Reikningurinn er óverðtryggður og óbundinn og fara vextirnir eftir innistæðu hans. Fjárhæðin er ávallt laus til útborgunar og millifærsla í heimabankanum er gjaldlaus. Ekki er gerð krafa um lágmarksfjárhæð á reikningnum - vextirnir koma strax með fyrstu krónunni og er ávöxtunin færð inn á í árslok. Netreikningur er góður kostur fyrir þá sem vilja sjálfir halda utan um sinn sparnað og sýsla með hann milliliðalaust.
PM-reikningur
PM-reikningur (peningamarkaðsreikningur) sparisjóðsins er afburða góður kostur fyrir fyrirtæki sem leita eftir hagkvæmri lausafjárávöxtun og vilja njóta hárra vaxta peningamarkaðarins. Lágmarksinnistæða á PM-reikningi sparisjóðsins er 250.000 krónur og er hvert innlegg bundið í 10 daga.
SP12
Sparisjóðurinn býður viðskiptavinum sínum upp á SP12 sem er hávaxta sparnaðarleið í heimabanka þar sem vextir greiðast mánaðarlega. Reikningurinn er óverðtryggður og óbundinn og fara vextirnir eftir innistæðu hans. Fjárhæðin er ávallt laus til útborgunar og millifærsla í heimabankanum er gjaldlaus. Ekki er gerð krafa um lágmarksfjárhæð á reikningnum - vextirnir koma strax með fyrstu krónunni og greiðast þeir tólf sinnum á ári. SP12 er góður kostur fyrir þá sem vilja sjálfir halda utan um og sýsla með sparnað sinn milliliðalaust.
Tromp
Trompreikningar eru óverðtryggðir reikningar sem hægt er að velja um hvort séu lausir eða bundnir til 12, 24, 36, 48 eða 60 mánaða. Þannig er hægt að velja hvort og þá hvaða binditími hentar best. Sé innistæða bundin er hún ávallt laus til úttektar gegn greiðslu úttektargjalds. Að loknum binditíma greiðist ekki úttektargjald. Vextir leggjast við einu sinni á ári, í desemberlok, og eru þeir alltaf lausir til úttektar.
Vaxtavelta
Vaxtavelta sparisjóðsins er óverðtryggður innlánsreikningur fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja auðvelda og örugga ávöxtun. Vextir, sem ákveðnir eru í byrjun hvers ársfjórðungs, eru færðir á reikninginn í lok hvers ársfjórðungs og geta þá verið lausir til ráðstöfunar. Höfuðstóllinn er alltaf laus en sé tekið út innan 90 daga frá innborgun greiðist 0,9% úttektargjald af úttektarfjárhæð sem dregst af næstu vaxtainnborgun. Lágmarksinnistæða vaxtaveltu er kr. 500.000,-.
Veltureikningur
Veltureikningar eru óbundnir og óverðtryggðir reikningar sem hægt er að fá debitkort á fyrir prókúruhafa reikningsins. Útlán eru háð lánareglum sparisjóðsins.
Viðskiptakort sparisjóðsins:
Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með gengistöflum kortafyrirtækja er varðar gengi á erlendum færslum.
VSK-reikningur
VSK-reikningurinn er óverðtryggður tímabilsbundinn reikningur sem er sérstaklega hugsaður til þess að halda utan um þá fjárhæð sem greiða á í virðisaukaskatt á næsta gjalddaga. Þetta gerir fyrirtækjum og sjálfstæðum atvinnurekendum kleift að halda þeirri fjárhæð sem greiða á í virðisaukaskatt aðskildri frá öðrum rekstri fram að gjalddaga. Fyrir utan að einfalda bókhaldið er helsti kosturinn að reikningurinn er alltaf laus til útborgunar í kringum VSK-gjalddaga, þ.e. upphæðin ávaxtast á milli gjalddaga og innistæðan er fyrir hendi þegar greiða á virðisaukaskattinn.