Valitor tilkynnir um breytingu á þjónustuaðila í netviðskiptum.

Miðvikudagskvöldið 10.nóvember, 2021, mun Valitor skipta um þjónustuaðila sem sér um auðkenningu korthafa í netviðskiptum. Gert er ráð fyrir að uppfærslu verði lokið um kl.19:00

Vefsíðan sem korthöfum er vísað á þegar frekari auðkenningar er krafist í netviðskiptum mun breytast samhliða þessu. Nýja vefsíðan mun frá og með þriðjudagskvöldinu líta svona út:

Korthafar eiga ekki að verða varir við neina aðra breytingu en lendi þeir í vandræðum hvetjum við korthafa til að hafa samband við sinn útgáfubanka eða þjónustuver Valitor utan opnunartíma banka.

Í ljósi þess að svik í netviðskiptum er að aukast viljum við einnig hvetja korthafa til að fara með gát í netviðskiptum.

-       Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú gefur upp kortaupplýsingar

-       Skoðaðu vefslóðina sem biður þig um kortaupplýsingar

-       Skoðaðu vel SMS skilaboð sem þú færð til auðkenningar

  • Passar upphæðin við þá upphæð sem ég er að versla í?
  • Passar myntin við þá mynt sem ég er að versla í?
  • Passar söluaðilinn við þann sem ég er að versla við?
  • Forðastu að nota „auto complete“ valmöguleikann því þá missir þú af ofangreindum upplýsingum sem birtast í SMS skilaboðunum.

Við hvetjum korthafa til að kynna sér efni á meðfylgjandi tengli Kortasvik - hvað ber að varast - Valitor