Bréf frá Sparisjóði Norðfjarðar til íbúa Fjarðabyggðar  
Kæru íbúar
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum eru fyrirhugaðar breytingar á rekstri Sparisjóðs Norðfjarðar sem við viljum kynna fyrir ykkur.
Á stofnfjáreigendafundi Sparisjóðs Norðfjarðar, sem haldinn var 18. ágúst síðastliðinn, var samþykkt að auglýsa allt stofnfé sjóðsins til sölu í opnu söluferli. Stjórn Sparisjóðsins réði ráðgjafafyrirtækið HF Verðbréf til að hafa umsjón með og veita stjórn ráðgjöf í söluferlinu. Söluferlið hófst með auglýsingu í blöðum í byrjun september og skiluðu bjóðendur inn skuldbindandi tilboðum í byrjun nóvember.
Síðan þá hafa farið fram viðræður við bjóðendur. Stjórn Sparisjóðsins hefur nú, í samráði við stærstu eigendur hans, tekið ákvörðun um að hafna öllum tilboðunum. Það er mat stjórnar og eigenda að tilboðin séu of lág og ekki í samræmi við væntingar. Stærstu eigendur Sparisjóðsins eru: Bankasýsla ríkisins, Fjarðabyggð og Samvinnufélag Útgerðarmanna (SÚN).
Nánar