KEA og allir Sparisjóðir sem starfa á félagssvæði KEA gerðu með sér samning um útgáfu KEA greiðslukorts, debetkorts og kreditkorts. Kortin hafa útlit KEA kortsins en eru um leið greiðslumiðill. Auk þess að hafa í för með sér mikil þægindi fyrir félagsmenn veita Sparisjóðirnir sérstök kjör til þeirra sem nýta sér kortaútgáfuna.
KEA-kortið er afsláttar- og fríðindakort sem KEA gefur út og sendir félagsmönnum að kostnaðarlausu. Á þeim tveimur árum sem kortið hefur verið gefið út hefur félagsmönnum fjölgað um sjö þúsund og notkun kortsins farið fram úr björtustu vonum allra sem að útgáfunni komu.
Almenn KEA kort eru enn í fullu gildi og standa fyrir sínu en sömu kjör bjóðast þeim sem þau hafa að frátöldum vildarkjörum Sparisjóðsins.

Nánar um afslætti samstarfsaðila KEA er að finna á
www.kea.is
Ýmis skjöl og upplýsingar