Dalvík

Sparisjóður Svarfdæla á Dalvík hefur verið starfræktur í yfir 120 ár. Fyrst um sinn var Sparisjóðurinn til húsa í KEA á Dalvík og var hann þar í tuttugu ár. Í júní 1979 flutti sjóðurinn í nýtt húsnæði í Ráðhúsinu á Dalvík og hefur hann verið þar síðan.
Sparisjóður Svarfdæla Dalvík býður viðskiptavinum sínum upp á víðtæka fjármálaþjónustu, sem er allt í senn örugg, þægileg og sniðin að þörfum hvers og eins.
Sparisjóðurinn Dalvík
Ráðhúsinu
620 Dalvík
Sími: 460-1800
Bréfsími 460-1801
Sparisjóðinn er opinn alla virka daga frá 9:15 til 16:00.
Hrísey
Sparisjóður var stofnaður í Hrísey árið 1931 þegar sveitarfélaginu var skipt frá Árskógshreppi.
Páll Bergsson á Syðstabæ var fyrsti sparisjóðsstjórinn og því næst var Oddur Sigurðsson frá Hafnarvík. Júlíus Oddson var þriðji sparisjóðsstjórinn og Stefán Stefánsson í Stebbahúsi (Norðurvegur 13) var fjórði. Árin 1956 -1963 var séra Fjalar Sigurjónsson sparisjóðsstjóri, en eftirmaður hans var Siguróli Björgvin Jónsson. Árið 1964 flutti sparisjóðurinn í Ásgarð (Austurvegur 1) og Gunnhildur Njálsdóttir hóf störf hjá sjóðnum. Hún tók síðan við sem sparisjóðsstjóri 1968 og er til 1980. Árið 1986 flutti sjóðurinn í Ráðhúsið (gamla barnaskólann).
Þann 1. ágúst 1980 tók Vera Sigurðardóttir við starfi sparisjóðsstjóra og var til 1. maí 1993, þegar þrír sparisjóðir sameinuðust undir heitinu Sparisjóður Svarfdæla, Dalvík. Það voru Sparisjóður Svarfdæla, Sparisjóður Hríseyjar og Sparisjóður Árskógsstrandar.
Á vordögum 1998 tókust samningar milli sparisjóðanna og Íslandspósts um samnýtingu á húsnæði þessara fyrirtækja. Þar var Sparisjóður Svarfdæla á Dalvík í fararbroddi er hann opnaði útibú í Hrísey en þar er einnig starfrækt pósthús.

Sparisjóður Svarfdæla, Hrísey
Norðurvegi 6-8
630 Hrísey
Sími: 466-1700 og 466-1701
Bréfsími: 466-1702
Sparisjóðurinn er opinn alla virka daga frá 12:00 til 16:00.