Eins og gefur að skilja hafa skipst á skin og skúrir í rekstri Sparisjóðs Ólafsvíkur á þeim 100 árum sem hann hefur starfað. Saga sjóðsins er samofin sögu atvinnulífs og byggðar í Ólafsvík á þessari öld og hefur hann því rétt eins og byggðarlagið sjálft gengið í gegnum ýmsar þrengingar og lifað mögur ár. En sparisjóðurinn hefur staðið allar hremmingar af sér og vaxið og dafnað á uppgangstímum þess á milli. Þrátt fyrir erfiðleikatímabil hafa alltaf verið til í Ólafsvík dugnaðar- og bjartsýnismenn sem hvergi hafa látið deigan síga og siglt sparisjóðnum upp úr öldudalnum rétt eins og sæfarandinn sem siglir fleyi sínu heilu í höfn.
Sparisjóður Ólafsvíkur (1143)
Ólafsbraut 19
355 Ólafsvík
Sími: 430-7000
Bréfsími: 430-7001
Fyrirspurnir