Sameining útibúa
Sameinað útibú Sparisjóðs Mýrasýslu og Kaupþings verður opnað að Digranesgötu 2 í Borgarnesi næstkomandi mánudag.
Föstudaginn 24. apríl verður útibú SPM við Digranesgötu 2 lokað, en útibú Kaupþings við Brúartorg 4 verður opið.
Viðskiptavinir SPM geta nú stundað bankaviðskipti sín í netbanka Kaupþings. www.kaupthing.is
Lykilorð og notendanafn fyrir netbanka Kaupþings er að finna undir yfirlit-Rafræn skjöl í Netbanka SPM.
Netbanka SPM verður lokað fimmtudaginn 30. apríl.
Nánari upplýsingar er að finna á www.kaupthing.is en einnig er hægt að hringja í Þjónustuver í síma 444-7000 eða fara í næsta útibú Kaupþings.
Starfsfólk Kaupþings
Til baka