Breyttur opnunartími stórgreiðslukerfis Seðlabanka Íslands
Hinn 25. maí næstkomandi mun opnunartími stórgreiðslukerfis Seðlabanka Íslands styttast og verður kerfið frá þeim tímapunkti opið alla virka daga frá kl. 09:00 til 16:15.
Utan þess tíma verður ekki hægt að millifæra fjárhæðir umfram 10 milljónir króna yfir í önnur fjármálafyrirtæki, hvorki í heild eða smærri upphæðum. Fjárhæðir umfram 10 milljónir verður enn sem áður hægt að millifæra allan sólarhringinn innan sparisjóðsins, ýmist í gegnum útibú okkar eða heima- og fyrirtækjabanka.
Nánari upplýsingar má finna á vef Seðlabanka Íslands
Til baka